Sakai Kikumori Standard Petty 12cm
Vandaður alhliða hnífur frá Sakai Kikumori, hentar vel fyrir grænmeti og minni verk.
Blaðið er úr AUS8 japönsku gæða ryðfríu stáli sem heldur biti mjög vel og handfangið er úr pakka við, sem verst raka og bleytu vel.
Standard línan frá Sakai Kikumori er blanda af miklum gæðum og góðu verði. Blaðið er úr sterku ryðfríu stáli sem heldur biti vel, en er auðvelt að brýna! Handfangið er mjög þægilegt og hnífurinn er frekar þunnur bak við eggið og sker því mjög vel.
Blaðlengd: 12cm.
Stál: AUS8 (Mono stál), 59hrc.
Handfang: Pakka viður.
Framleiðandi: Sakai Kikumori.
Upprunaland: Japan